Fara í efni

Start up landið - Umsóknarfrestur

Fréttir

Ertu með hugmynd sem á erindi lengra? – Startup Landið 2026

Opið er fyrir umsóknir í Startup Landið 2026, nýsköpunarhraðal fyrir frumkvöðla, sprotafyrirtæki og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni. Vestfjarðastofa hvetur Vestfirðinga með góðar hugmyndir til að nýta tækifærið og sækja um – umsóknarfrestur er til 1. September 2026.

Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtakanna um allt land og er ætlað að hjálpa frumkvöðlum og fyrirtækjum að færa hugmyndir sínar nær því að verða að raunverulegum vörum, þjónustu eða fyrirtækjum.

Einstaklingar og teymi með góðar viðskiptahugmyndir eru hvattir til að sækja um en hraðallinn er ekki eingöngu fyrir nýja frumkvöðla heldur einnig starfandi fyrirtæki sem vilja þróa nýjar vörur, þjónustu eða lausnir.

Frá hugmynd að næstu skrefum

Þátttakendur fá aðgang að fræðslu, vinnustofum og leiðsögn sérfræðinga og reynslumikilla frumkvöðla. Jafnframt gefst tækifæri til að byggja upp tengsl við aðra frumkvöðla og fyrirtæki víðs vegar um landið.

Í hraðlinum verður meðal annars unnið að þróun viðskiptahugmynda, mótun viðskiptamódels og markaðsgreiningu. Markmiðið er að þátttakendur standi að lokum betur að vígi til að taka næstu skref – hvort sem þau felast í frekari vöruþróun, fjármögnun eða uppbyggingu fyrirtækja.

Startup Landið fer fram frá 24. september til 5. nóvember og er að mestu haldið á netinu. Fyrirkomulagið gerir fólki því kleift að taka þátt óháð búsetu og samhliða vinnu eða námi.

Við viljum sjá vestfirskar hugmyndir í Startup Landinu

Á Vestfjörðum er víða að finna tækifæri til nýsköpunar og Startup Landið er vettvangur til að taka hugmyndir sem hafa verið í mótun – jafnvel lengi – og prófa þær, þróa og færa nær framkvæmd.

Vestfjarðastofa hvetur því einstaklinga, teymi og fyrirtæki á Vestfjörðum sem ganga með hugmynd að nýrri vöru, þjónustu eða lausn til að láta slag standa og taka þátt.

Umsóknarfrestur er til 1. september 2026.

Nánari upplýsingar og umsókn má finna á www.startuplandid.is

Sækja um 

Skoða á viðburðardagatali