16. október 2024			
		
	
					
															
							Fréttir						
																
			HMS, Tryggð byggð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fundarröð um land allt um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur.
Í samstarfi við Vestfjarðarstofu er boðað til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar á Vestfjörðum. Fundurinn verður haldin í Bryggjusalnum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði mánudaginn 21. október og hefst kl. 12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð.
Fundinum verður einnig streymt á facebook síðu HMS.
Dagskrá
- Uppbygging leiguíbúða á Vestfjörðum
 Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu
- Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur
 Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingar á húsnæðissviði HMS
- Byggjum í takt við þarfir
 Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI
Fundarstjóri: Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkur
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
