Fara í efni

Skjaldborgarhátíðin hlaut Eyrarrósina 2020

Fréttir
Skjaldborgarhátíðin á Patreksfirði fékk Eyrarrósina 2020
Skjaldborgarhátíðin á Patreksfirði fékk Eyrarrósina 2020

Skjaldborg  Hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreksfirði hlaut Eyrarrósina 2020, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Tilkynnt var um handhafa verðlaunanna á Bessastöðum í gær, en þetta var í sextánda sinn sem Eyrarrósin var veitt.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Air Iceland Connect og Listahátíðar í Reykjavík.

Alls bárust 25 umsóknir um Eyrarrósina 2020 og voru sex verkefni valin á Eyrarrósarlistann í ár:

  • Júlíana - Hátíð sögu og bóka (Stykkishólmur)
  • Kakalaskáli í Skagafirði (Akrahreppur)
  • Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði (Fjallabyggð, Siglufjörður)
  • Plan B Art Festival (Borgarbyggð/Vesturland)
  • Reykholtshátíð (Borgarfjörður/Vesturland)
  • Skjaldborg -Hátíð íslenskra heimildarmynda (Patreksfjörður)

Eliza Reid forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar og afhenti hún viðurkenninguna á Bessastöðum í gær.

Skjaldborgarhátíðin í ár verður haldin um hvítasunnuhelgina, 29. maí til 1. Júní.  Hátíðin setur mikinn svip á bæjarlífið ár hvert þar sem skipuleggjendur, fyrirtækin, félagasamtök og íbúarnir leggjast á eitt að gera öllum kleift að njóta helgarinnar í góðum félagsskap.