Fara í efni

Skjaldborg 2025 sett í dag

Fréttir Uppbyggingasjóður Vestfjarða

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda hefst í kvöld, en hún fer venju samkvæmt fram um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði. Skjaldborg er einstök og kraftmikil uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og sú eina á Íslandi sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða hefur lengi verið meðal helstu styrktaraðila Skjaldborgarhátíðarinnar. Hátíðin gegnir mikilvægu hlutverki í þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar og hefur á undanförnum árum byggt sér upp sterka stöðu í íslensku menningarlífi. 

Aðgangur að öllum kvikmyndasýningum í Skjaldborgarbíói er ókeypis – en hátíðarpassi veitir auk þess aðgang að öðrum viðburðum, þar á meðal sjávarréttaveislu, plokkfiskboði kvenfélagsins, balli, sundi og tjaldstæði alla helgina.

Dagskráin er fjölbreytt og metnaðarfull, með sýningu 18 nýrra heimildamynda, þar af 5 í fullri lengd og 13 styttri myndir. Einnig verða sýnd fimm verk í vinnslu. Heiðursgestur hátíðarinnar 2025 er ítalski leikstjórinn Alessandra Celesia, en hún sýnir verk sín og tekur þátt í umræðum. Þá verður sýnd heimildamyndin Menningarsmyglarinn, sem fjallar um Ásgeir H. Ingólfsson – og ný verðlaun, Ásgeirinn, verða veitt í hans nafni verða veitt dyggasta áhorfanda hátíðarinnar, en Ásgeir, sem lést fyrr á þessu ári, var mikill velunnari Skjaldborgar. Einnig verður að vanda veittur Einarinn, áhorfendaverðlaun hátíðarinnar fyrir bestu myndina að mati gesta og Ljóskastarinn, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar .

Af öðrum dagskrárliðum má nefna sýningu Kvikmyndasafns Íslands á áður óbirtu efni frá Patreksfirði á árunum 1948–1953, kvöldpartí, skrúðgöngu, kóngadans, limbódanskeppni og lokaball með Inspector Spacetime í Félagsheimilinu á sunnudagskvöldið.

Skjaldborg er ekki bara kvikmyndahátíð – heldur samfélagsleg menningarveisla sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Dagskrá og nánari upplýsingar.