Fara í efni

Síðasti möguleiki að sækja um Eyrarrósina 5. jan. 2106

Fréttir
Eyrarrós
Eyrarrós

Eyrarrósin verður veitt í tólfta sinn, snemma árs 2016, en er viðurkenningin veitt fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð og það eru ByggðastofnunFlugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum frá upphafi árið 2005. Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. janúar 2016.

 

Tíu verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar ásamt peningaverðlaunum og flugmiðum frá Flugfélagi Íslands. Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.650.000 kr. Hin tvö hljóta peningaverðlaun og auk þess fá öll þrjú tilnefndu verkefnin flugmiða með Flugfélagi Íslands.

 

UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:

  • Lýsing á verkefninu Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi þess, sögu og markmiðum.
  • Tíma- og verkáætlun Gera skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins og áformum á árinu 2016. Skilyrði er að verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum.
  • Upplýsingar um aðstandendur Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.
  • Fjárhagsáætlun Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári. Uppgjör ársins 2015 fylgi umsókn.

Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar verður hún ekki tekin til greina.

 

Handhafar Eyrarrósarinnar frá upphafi eru:

  • Þjóðlagahátíðin á Siglufirði (2005)
  • LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi (2006)
  • Stranda­galdur á Hólmavík (2007)
  • Rokkhátíð alþýðunnar; Aldrei fór ég suður (2008)
  • Landnámssetur Íslands (2009)
  • Bræðslan á Borgarfirði eystra (2010)
  • Sumartónleikar í Skálholtskirkju (2011)
  • Safnasafnið á Svalbarðsströnd (2012)
  • Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi (2013)
  • Áhöfn­in á Húna (2014)
  • Frystiklefinn á Rifi (2015)

Umsóknir skal senda rafrænt til Listahátíðar í Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is.