Tillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025–2050 var samþykkt í svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða 4. maí 2026 og send sveitar og bæjarstjórnum til samþykktar.
Tillagan hefur nú verið samþykkt af öllum sveitarfélögum sem standa að gerð svæðisskipulagsins og lauk þar með þessu verkefni sem hófst í september 2023 og verk og tímaáætlun þess stóðs þar með í megindráttum.
Tillaga um samþykkt svæðisskipulagsins var til afgreiðslu í bæjar og sveitarstjórnum sem hér segir:
Sveitarstjórn Árneshrepps, 6. maí 2026
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 7. maí 2026
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps, 8. maí 2026
Bæjarstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar, 12. maí 2026
Sveitarstjórn Strandabyggðar, 12. maí 2026
Bæjarstjórn Vesturbyggðar, 13. maí 2026
Sveitarstjórn Reykhólahrepps, 13. maí 2026
Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps, 15. maí 2026
Tillagan var í öllum tilvikum samþykkt samhljóða.
Auglýsing um að tillagan væri í kynningu sbr. 24 gr. Skipulagslaga, var birt á vefum Vestfjarðastofu og aðildarsveitarfélaga, vef bæjarins besta, í Morgunblaðinu og 26. tbl. Lögbirtingablaðsins. Niðurstaða svæðisskipulagsnefndar sbr. 3. mgr. 25. gr. verður nú auglýst á sömu miðlun að Lögbirtingi frátöldum. Samantekt umsagna og viðbragða að lokinni kynningu á tillögu var hlaðið upp á fyrra skrefi auglýsingar og er þar aðgengileg öllum þeim sem sendu inn athugasemdir, Sjá nánar í Skipulagsgátt https://skipulagsgatt.is/issues/2024/603