Fara í efni

Samtal um aðgerðaáætlun í ferðamálum til 2030

Fréttir

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Fundirnir eru haldnir víðs vegar á landinu og verður ráðherra á Ísafirði 4. mars kl. 13:00 í Edinborgarhúsinu.

Fyrstu drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila. Drögin eru byggð á vinnu sjö starfshópa og stýrihóps og voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember á síðasta ári, en tveir fulltrúar Vestfjarðastofu sátu í hópunum.

Ferðaþjónustuaðilar og áhugasöm um þróun ferðaþjónustunnar hjartanlega velkomin!

Vinsamlegast skráðu mætingu hér.

Fundardagskrá um landið allt:

• 14. febrúar kl. 14:00 Akureyri (Hof)
• 15. febrúar kl. 15:00 á Sauðárkróki (Félagsheimilið Ljósheimar)
• 21. febrúar á Suðurlandi (Hótel Hvolsvöllur)
• 22. febrúar kl. 14:00 á Egilsstöðum (Hótel Hérað)
• 27. febrúar í Borgarnesi (Landnámssetrið)
• 28. febrúar kl. 15:00 í Reykjavík
• 4. mars kl. 13:00 á Vestfjörðum (Edinborgarhúsið)
• 5. mars kl. 13:00 í Reykjanesbæ (Hljómahöll)
• 6. mars á Höfn í Hornafirði (Nýheimar)

Sjá nánar á Ferðamálastefna.is

Drög að aðgerðaáætlun í ferðamálum

Skoða á viðburðardagatali