Fara í efni

Samstarf Vestfjarðastofu og Vesturlandsstofu um Hringveg 2

Hringvegur 2
Hringvegur 2

Díana Jóhannsdóttir fyrir hönd Vestfjarðastofu og Margrét Björnsdóttir fyrir hönd Vesturlandsstofu

Í síðustu viku skrifuðu Vestfjarðastofa og Vesturlandsstofa undir samstarfssamning um þróun á ferðamannaleiðinni Hringvegs 2. 
Um er að ræða ferðmanna leið sem er um 850 km löng leið og liggur um sjö sveitafélög á Vestfjörðum auk Dalabyggðar á Vesturlandi. 

Lagt er upp með að ferðaleiðin Hringvegur 2 verði aðdráttarafl fyrir svæðið allt árið, en það verður raunhæfur möguleiki þegar Dýrafjarðargöng opna og í framhaldi af því heilsársvegur um Dynjandiheiði. Margir áhugaverðir staðir, söguslóðir og starfsemi eru á þessari leið og hér er um að ræða svæði sem við teljum eiga mikið inni þegar að kemur að ferðaþjónustu.

Þá hefur einnig verið gengið frá samningi við breska ráðgjafafyrirtækið Blue Sail sem sérhæfir sig í þróun slíkra ferðamannaleiða og hefur meðal annars komið að verkefnunum Arctic Coast Way á Norðurlandi, Celtic Routes og Wild Atlantic Way.

Ráðgjafar frá Blue Sail voru á ferðinni í síðustu viku, keyrðu Hringveg 2 með verkefnastjóra verkefnisins og kynntu sér aðstæður. Einnig héldu þau  fund með stýrihóp verkefnisins þar sem farið var í undirbúning á vinnustofum sem haldnar verða í september. Vinnustofurnar verða haldnar á Ísafirðir 3. september, á Patreksfirði 4. september og í Dölunum og Ströndum 5. september. Fundartímar og staðir verða auglýstir síðar. 

Gert er ráð fyrir að leiðin verði formlega opnuð á sama tíma og Dýrafjarðargöng sem áætlað er að verði í september 2020.