Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til opinna íbúafunda í öllum landshlutum og verður hann í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þriðjudaginn 19. ágúst á milli kl. 16:30 og 18. Tilgangur fundanna er að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins undir yfirskriftinni Fjárfest í innviðum til framtíðar. Vill ráðherra kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði.
Fundurinn er öllum opin og hér má skrá sig til þátttöku. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Reglulegt samráð
Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.
Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - irn@irn.is