Fara í efni

Samráðsfundur með hagsmunaðilum á Vestfjörðum vegna sértækra aflaheimilda

Fréttir Fjórðungssamband Vestfirðinga

Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 er 5,3% aflaheimilda varið til margvíslegra sértækra aðgerða, svo sem byggðakvóta, sértæks byggðakvóta, línuívilnunar, skelbóta og strandveiða, sjá hér

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að vega þurfi og meta fyrirkomulag þeirra aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir með það að markmiði að tryggja betur byggðafestu og nýliðun, sjá hér 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða meðferð og ráðstöfun ofangreindra aflaheimilda.

Hópinn skipa

  • Þóroddur Bjarnason prófessor (formaður),
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir alþingismaður,
  • Bergþóra Benediktsdóttir aðstoðarmaður forsætisráðherra,
  • Gunnar Atli Gunnarsson aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Þorsteinn Víglundsson alþingismaður.
  • Starfsmenn starfshópsins eru Jón Þrándur Stefánsson og Hinrik Greipsson.

Starfshópurinn efnir til samráðsfundar með fulltrúum sveitarstjórnarstigsins og hagsmunaaðilum á Vestfjörðum.

Vestfjarðastofa hvetur fulltrúa sveitarstjórnarstigsins og hagsmunaaðila á svæðinu til að mæta á fundinn. Mikilvægt er að raddir sem flestra hagsmunaaðila á starfssvæðinu heyrist á þessum fundi. 

Fundurinn verður haldinn í sal Þróunarseturs Vestfjarða fimmtudaginn 19. september kl. 14-16:30 en skráning fer fram hér.