Fara í efni

Sameining Árneshrepps og Kaldrananeshrepps samþykkt

Fréttir

Sveitarfélögum á Vestfjörðum mun brátt fækka um eitt, en íbúar í Árneshreppi og Kaldrananeshreppi hafa samþykkt sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningu. 

Kosningin stóð yfir frá 14. mars til 28. mars og höfðu íbúar kost á að greiða atkvæði í því sveitarfélagi sem þeir eru á kjörskrá í og gafst þeim einnig kostur á að greiða atkvæði með pósti á tímabilinu. Niðurstöður kosningarinnar sýna að meirihluti kjósenda í báðum sveitarfélögum studdi sameininguna.

Í Árneshreppi voru 54 á kjörskrá og greiddu 44 atkvæði, sem samsvarar 81,48% kjörsókn. Af þeim sögðu 25 já, eða 56,81% greiddra atkvæða, 18 sögðu nei, eða 40,90%, og einn seðill var auður.

Í Kaldrananeshreppi voru 95 á kjörskrá og greiddu 56 atkvæði, sem er 58,94% kjörsókn. Þar sögðu 41 já, eða 73,21% kjósenda, 12 sögðu nei, eða 21,42%, og þrír seðlar voru ógildir.

Með þessari niðurstöðu hefur sameining sveitarfélaganna verið samþykkt í báðum sveitarfélögum. Sveitarstjórnir hreppanna tveggja munu skipa stjórn til undirbúnings fyrir sameinað sveitarfélag og gera tillögu til innviðaráðherra um hvenær og hvernig sameiningin tekur gildi.