Fara í efni

RECET gefur út aðgerðabanka

Fréttir RECET

Aðgerðabanki RECET er hagnýtt verkfæri sniðið að þörfum sveitarfélaga á Íslandi við gerð aðgerðaáætlana í orkuskiptum og loftslagsmálum. Bankinn er safn aðgerða sem nýtast sem grunnur að heildstæðum aðgerðaáætlunum í loftslagsáætlunum með alls 49 aðgerðum á sviði orkuskipta, orkunýtni, breyttra ferðavenja, fræðslu og aukinnar sjálfbærni í rekstri sveitarfélaga.

Markmið aðgerðabankans er að auðvelda sveitarfélögum að uppfylla lögbundna skyldu sína um gerð aðgerðaáætlana í loftslagsmálum, með skýrri framsetningu og tillögum að útfærslum á einstökum aðgerðum.

Í aðgerðabankanum er hver aðgerð sett fram með lýsingu á markmiði, hugmyndum að framkvæmd, tillögu að ábyrgðaraðila og flokkun innan stjórnsýslu sveitarfélags. Einnig er leitast við að tengja aðgerðirnar við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum (co2.is), en mjög hefur skort á samfellu milli markmiða ríkisins og sveitarfélaga í loftslagsmálum.

Aðgerðabankinn er ekki tæmandi, en spannar þó drjúgt svið. Aðgerðirnar eru líka misflóknar í innleiðingu, en sumar er hægt að innleiða með mjög einföldum hætti í stjórnsýslunni, en aðrar krefjast samstarfs fleiri aðila og eru dýrari í framkvæmd.

Unnið í samstarfi við sveitarfélögin

Aðgerðabankinn var unninn af Eimi, SSNE og Vestfjarðastofu í kjölfar vinnustofa sem haldnar voru með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Vestfjörðum árin 2024 og 2025. Aðgerðirnar byggja því með beinum hætti á þörfum og reynslu starfsfólks og stjórnenda sveitarfélaga á landsbyggðinni. Þessi vinna er hluti af RECET-verkefninu (Rural Europe for the Clean Energy Transition) sem styður orkuskipti í dreifðum byggðum, og styrkt er af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins.

Aðgerðabankann er bæði hægt að skoða beint á vefnum eða hlaða niður á Excel-formi, á íslensku og ensku, sem auðveldar sveitarfélögum að aðlaga efnið að eigin vinnslu og innleiðingu.

Aðgerðabankann má nálgast hér: www.eimur.is/adgerdabanki og er hann er öllum opinn og frjáls til afnota.