Fara í efni

Really Bad Photographer

Fréttir

Vestfirðir tóku á dögunum á móti Blanche Montemard, „slæma ljósmyndaranum“ í alþjóðlegri auglýsingaherferð Icelandair, Really Bad Photographer. Herferðin hefur vakið mikla athygli en markmið hennar er að sýna fram á að náttúra Íslands sé svo einstök að jafnvel óreyndur eða „slæmur“ ljósmyndari geti náð góðum myndum hér á landi.

Blanche og tökulið hennar hafa undanfarið ferðast um Ísland og heimsóttu Vestfirði nú á dögunum. Vestfjarðastofa tók á móti hópnum og aðstoðaði við skipulagningu heimsóknarinnar í landshlutanum.

Á ferð sinni um Vestfirði fékk Blanche að kynnast fjölbreyttri náttúru, menningu og sögu svæðisins. Hún heimsótti meðal annars Hvítanes þar sem hún reyndi að festa seli á mynd, kom við í Ósvör í Bolungarvík og kynntist sögu sjósóknar, tók myndir af einu þekktasta kennileiti Vestfjarða Dynjanda, minglaði við aðra ferðamenn og fór á Látrabjarg til að skoða lunda. Auk þess naut hópurinn fleiri staða og upplifana sem sýna vel þá sérstöðu sem Vestfirðir hafa sem áfangastaður.

Samstarfið við Icelandair er liður í því að efla sýnileika Vestfjarða á alþjóðlegum mörkuðum og vekja athygli á landshlutanum sem einstökum áfangastað fyrir ferðafólk sem sækist eftir náttúru, kyrrð, sögu og sterkri upplifun.

Hægt er að fylgjast með ferðalagi Blanche, myndum hennar og myndböndum úr verkefninu á vef Icelandair.