Þrjú sæti standa íslensku skólafólki til boða á fjölþjóðlegri eTwinning ráðstefnu sem fer fram í Volterra á Ítalíu dagana 21.–24. október 2026. Ráðstefnan er ætluð starfsfólki leik- og grunnskóla í dreifbýli sem starfar með börnum á aldrinum 3–8 ára.
Dagana 21.–24. október 2026 verður eTwinning ráðstefnan eTwinning Multilateral Seminar for Schools in Remote Areas – Italy and Nordic Countries haldin í Volterra á Ítalíu. Síðasti dagur til að sækja um er 12. ágúst.
Á ráðstefnunni koma saman kennarar og annað skólafólk frá Ítalíu og Norðurlöndunum til að miðla reynslu, kynnast nýjum starfsháttum og þróa hugmyndir að nýjum eTwinning-verkefnum.
Á dagskrá eru meðal annars skólaheimsókn, kynningar á góðum starfsháttum, vinnustofur, tengslamyndun og menningardagskrá. Ráðstefnan býður upp á vettvang fyrir þátttakendur til að byggja upp alþjóðlegt tengslanet og efla samstarf skóla í dreifbýli.
Markmið ráðstefnunnar
- Að efla alþjóðlegt samstarf leik- og grunnskóla í dreifbýli.
- Að skapa vettvang fyrir miðlun reynslu og góðra starfshátta.
- Að styðja við þróun nýrra eTwinning-verkefna og samstarfsverkefna milli landa.
- Að styrkja tengslanet kennara og annars skólafólks sem starfar með ungum börnum.
- Að kynna möguleika eTwinning sem verkfæri til alþjóðlegs samstarfs og skólaþróunar.
Um ráðstefnuna
Hvenær?
21.–24. október 2026
Hvar?
Volterra, Ítalía
Fyrir hverja?
Kennara og annað starfsfólk leik- og grunnskóla í dreifbýli sem starfar með börnum á aldrinum 3–8 ára.
Tungumál:
Enska
Fjöldi þátttakenda frá Íslandi:
Þrír
Ferðastyrkur:
eTwinning landskrifstofan greiðir flug, gistingu og fæði á ráðstefnudögum.
Skilyrði fyrir þátttöku:
Þátttakendur skuldbinda sig til að kynna eTwinning og ráðstefnuna í sínum skóla að lokinni ferð og skila stuttri ferðasögu til eTwinning landskrifstofunnar.