Þriðjudaginn 3. mars kl.15 boðar Ísafjarðarbær í samstarfi við Aldrei fór ég suður og Vestfjarðastofu til vinnustofu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þar sem markmiðið er að móta sameiginlega sýn og aðgerðir hagaðila páska fyrir vestan.
Löng hefð er fyrir miklu fjöri á Ísafirði og nágrenni um páskana. Fyrst var það Skíðavikan en svo fór gleðin á næsta stig með tilkomu Aldrei fór ég suður. Heimsóknartölur sýna jafna og þétta aukningu frá ári til árs og teygja viðburðir sig nú yfir allan Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og Súðavík.
Margir eiga mikið undir. Páskarnir hafa skapað aukin umsvif í verslun, þjónustu og viðburðahaldi, heimafólk fær til sín gesti og tekur þátt í viðburðum sem aldrei fyrr. Það sem hefur knúið þessa skemmtanavél áfram meira en annað er Aldrei fór ég suður, en hátíðin er samt bara stakur viðburður í miklu stærra mengi sem allt samfélagið á Vestfjörðum á hlutdeild í.
Aldrei fór ég suður hefur allar götur lagt sig fram um að vera góður gestgjafi, sem hefur verið eitt helsta einkennismerki hátíðarinnar. Nú kallar forsvarsfólk AFÉS eftir því að samfélagið allt sameinist um að vera góður gestgjafi – að öll sem eiga hag af því að páskarnir séu stórviðburður á norðanverðum Vestfjörðum komi saman og marki stefnu um hvernig málum skal háttað til lengri framtíðar og skemmri.
Þau sem starfa í verslunar- og veitingarekstri, ferðaþjónustu og viðburðahaldi, auk fulltrúa frá sveitarfélögunum eru sérstaklega hvött til að mæta.
Klukkan 20 verður Aldrei fór ég suður með íbúafund í Edinborg þar sem skemmtanavél heimaliðsins verður knúin í gang og listi hinna staðföstu sem spilar á hátíðinni í ár verður opinberaður.