Fara í efni

Óskum eftir að ráða verkefnisstjóra á Drangsnesi

Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra á Drangsnesi. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða í Kaldrananeshreppi og vinnur að eflingu byggðar og mannlífs í Kaldrananeshreppi.

Verkefnið er til fimm ára, hófst árið 2025, er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Kaldrananeshreppi.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Drangsnesi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar
  • Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
  • Ráðgjöf og aðstoð við gerð styrkumsókna og viðskiptaáætlana
  • Skýrslugerð og upplýsingamiðlun til íbúa og samstarfsaðila
  • Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
  • Önnur verkefni samkvæmt samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun áskilin.
  • Reynsla af ráðgjöf, fjárfestingum eða atvinnuþróun æskileg
  • Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórn
  • Þekking, skilningur og reynsla af atvinnu- og byggðamálum
  • Þekking á styrkjaumhverfi og skrifum umsókna í innlenda og erlenda sjóði
  • Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.
Fríðindi í starfi

Sveiganlegur vinnutími