Fara í efni

Opnað fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Fréttir

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.

Um er að ræða fjóra styrkjaflokka sem sjá má hér

Allar upplýsingar um sjóðinn á finna á heimasíðu sjóðsins

Umsóknareyðublaðið má nágast á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2021

Starfsfólk Vestfjarðastofu býður uppá ráðgjöf og aðstoð við gerð umsókna