Fara í efni

Nýtt frumkvöðlanám ætlað innflytjendum

Fréttir

Háskólinn á Bifröst er að ýta úr vör nýrri örnámsleið í frumkvöðlafræðum. Námið er á ensku og sérstaklega hannað fyrir innflytjendur sem vilja taka fyrstu skrefin í átt að háskólanámi en um leið kynnast frumkvöðla og nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Markmiðið er að auðvelda þeim sem eru ekki íslenskumælandi að hefja háskólanám. Námið veitir þátttakendum aðgang að nýju tengslaneti og hagnýta þekkingu og færni í frumkvöðlastarfi. Farið verður yfir þróun viðskiptahugmynda, fjármögnun og rekstur eigin fyrirtækis og snýr ein lotan að því hvernig hönnunarhugsun er nýtt í nýsköpun.

Námið er kennt af reynslumiklum frumkvöðlum og sérfræðingum, þeim Fidu Abu Libdeh, stofnanda GeoSilica Iceland, Arnari Sigurðssyni, sérfræðingi í skapandi nýsköpun og Michael Hendrix, fyrrverandi yfirmaður hjá IDEO (USA) og stofnanda Huldunótna á Íslandi.

Nánari upplýsingar og skráning er aðgengileg á vef Háskólans á Bifröst á íslensku og ensku.