Fara í efni

Nýtt fréttabréf Vestfjarðastofu komið út

Fréttir

Fréttabréf febrúarmánaðar komið út

Fréttabréf Vestfjarðastofu fyrir febrúarmánuð er komið út. Þrátt fyrir að febrúar sé stysti mánuður ársins á dagatalinu var nóg að gera sem endranær. Í fréttabréfinu er að finna samansafn frétta mánaðarins auk pistla frá Sigríði Ó. Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra og Gylfa Ólafssyni, formanni stjórnar, sem bæði koma inn á málefni sem eru ofarlega á baugi þróun byggða á Vestfjörðum og flugsamgöngur. Vestfjarðastofa kom víða við, eins og á opnum fundum þar sem kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða var til umræðu og á Sólmyrkvaleikum Púkans sem öllum börnum á miðstigi í fjórðungnum gafst kostur að taka þátt í. Þá fórum við alla leið til Asíu er Markaðsstofa Vestfjarða var á ferðinni bæði í Tævan og Japan.

Hægt er að skrá sig á póstlista (Skráning á póstlista hér) og fá bréfið beint í tölvupósti en alltaf má líka nálgast fréttabréfið hér á síðu Vestfjarðastofu. 

Fréttabréf Vestfjarðastofu - febrúar 2026