Fara í efni

Nýsköpunarbærinn Ísafjörður

Fréttir

Verkefnið Nýsköpunarbærinn Ísafjörður er verkefni sem Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar ákvað að fara í á dögunum í samstarfi við Vestfjarðastofu. Verkefnið lýtur að því að efla Ísafjörð sem nýsköpunarbæ og ýta undir og efla hugarfar nýsköpunar á svæðinu. Stýrihópur verkefnisins kom saman og er verkefnið formlega byrjað. 

Eitt af því sem einkennt hefur Ísafjörð er öflugur miðbær þar sem aðstaða er frábær til mannfögnuða og mannlíf er oft fjörugt, sérstaklega á sumrin þegar skemmtiferðaskip eru á svæðinu. Verslun hefur þó dregist gríðarlega saman og ekki er líklegt að þeirri þróun verði snúið við. Horfa þarf til þess með hvaða öðrum hætti en með verslun væri hægt er að efla miðbæinn.

Verkefnið hefur það að markmiði að  tengja miðbæinn og hafnarsvæði Ísafjarðar saman í gegnum vinnu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar. Nú þegar er byrjað að vinna að hugmynd um stækkun á hafnarsvæðinu á Ísafirði,  en þar hafa nokkur öflug fyrirtæki sótt um lóðir og fyrirsjáanlegt er að svæðið verði í framtíðinni vettvangur öflugrar atvinnustarfsemi og mannlífs. Líklegt er að á næstu árum byggist  upp meiri þjónusta við þá sem þar starfa og mikilvægt er að tengja vel saman hafnarsvæðið og miðbæinn þannig að ein heild skapist.

Ísafjarðarbær óskar eftir áhugasömum einstaklingum til að koma í vinnuhóp sem mun koma að hugmyndavinnu hvernig er hægt að efla miðbæ Ísafjarðar og tengja hann hafnarsvæðið betur saman. Áhugasamir geta sent tölvupóst á Línu Björgu Tryggvadóttur verkefnastjóra Vestfjarðastofu.  Hægt er að sjá nánari upplýsingar um verkefnið hér.