26. febrúar 2026
Fréttir
KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður og Vísindagarðar HÍ halda opinn kynningarfund í Grósku og í streymi. Teymið kom í heimsókn fyrir skömmu á Ísafjörð með sömu dagskrá og var góður rómur gerður að heimsókninni. Nú gefst Vestfirðingum sem öðrum landsmönum kostur á að hlýða á erindin á fjarfundi.
DAGSKRÁ:
Fjögur stutt og hnitmiðuð 15 mínútna erindi
– KLAK kynnir sín verkefni en félagið heldur úti metnaðarfullri dagskrá árið um kring fyrir einstaklinga með hugmyndir og fyrirtæki í vexti, þátttakendum að kostnaðarlausu.
– Tækniþróunarsjóður kynnir styrki fyrir nýsköpunarverkefni – frá hugmynd að markaði.
– Íslandsstofa segir frá aðgangi að alþjóðamörkuðum, erlendum fjármögnunartækifærum og hvernig byggja má upp öflugt tengslanet fyrir vöxt fyrirtækja.
– Vísindagarðar HÍ kynna stuðningsumhverfi sitt, nýsköpunarsamfélagið Mýrina og uppbyggingu nýs djúptækniseturs.
Að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun. Tækifæri til að ræða eigin verkefni, fá ráðgjöf og tengjast beint fulltrúum stofnananna.
Fyrir hver?
Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis – sérstaklega ætlaður þeim sem:
- eru með nýsköpunar- eða viðskiptahugmynd
- eru að stíga sín fyrstu skref
- eða vilja þróa verkefni sitt áfram og sækja á nýja markaði
- eru að stíga sín fyrstu skref
- eða vilja þróa verkefni sitt áfram og sækja á nýja markaði
Skráning hér: https://luma.com/xhgkdxyc
Það þarf að skrá sig á fundinn hvort sem fólk mætir á staðinn í Grósku eða fylgist með í streymi. Skráðir þátttakendur fá sendan hlekk áður en viðburðurinn hefst.
Viðburðurinn er partur af hringferðinni "Nýsköpun & ný tengsl" sem skapar vettvang fyrir samtal, miðlun upplýsinga og tengslamyndun milli frumkvöðla, fyrirtækja og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.
Viðburðurinn er partur af hringferðinni "Nýsköpun & ný tengsl" sem skapar vettvang fyrir samtal, miðlun upplýsinga og tengslamyndun milli frumkvöðla, fyrirtækja og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.