Fara í efni

Ný könnun á afstöðu landsmanna til fiskeldis í sjó á Vestfjörðum

Fréttir

Alls 46,3% landsmanna eru jákvæðir gagnvart fiskeldi í sjó á Vestfjörðum en 29,6% eru neikvæðir og 24,1% eru hvorki jákvæðir né neikvæðir.  Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðhorfskönnun sem Gallup gerði fyrir Vestfjarðastofu í nóvember 2018.

Mestur stuðningur við fiskeldi í sjó á Vestfjörðum var í Suðurkjördæmi þar sem rúmlega 62% voru jákvæðir en 20% neikvæðir. Minnstur stuðningur við fiskeldi í sjó reyndist meðal svarenda í Reykjavíkurkjördæmi suður þar sem tæplega 32% voru jákvæðir gagnvart fiskeldi í sjó á Vestfjörðum en 38% voru neikvæðir. Í Norðvesturkjördæmi voru tæplega 54% jákvæðir gagnvart fiskeldi í sjó á Vestfjörðum, tæplega 23% voru neikvæðir og tæplega 24% voru hvorki jákvæði né neikvæðir. Spurt var „Ertu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) gagnvart fiskeldi í sjó á Vestfjörðum?“ og tæplega 89% þátttakenda tók afstöðu til spurningarinnar.

Gæði matvæla og vondir vegir

Í könnun Gallup var einnig spurt um gæði matvæla sem framleidd eru á Vestfjörðum. Spurt var: „Almennt séð, hversu góð eða slæm telur þú gæði matvæla sem framleidd eru á Vestfjörðum?“ Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar telja liðlega 89% landsmanna gæði matvæla sem framleidd eru á Vestfjörðum almennt góð en innan við 1% telur þau slæm og um 10% segja vestfirsk mætvæli hvorki góð né slæm.

Í könnun Gallup voru svarendur beðnir að nefna þrjú atriði sem þeim koma fyrst í hug þegar þeir heyra minnst á Vestfirði. Flestir nefndu erfiðar samgöngur eða vonda vegi en næst oftast kom Ísafjörður upp í hugann, í þriðja sæti var náttúrufegurð og í fjórða sæti fegurð. Vestfirsk fjöll voru í fimmta sæti, sjávarútvegur í því sjötta og laxeldi í sjöunda. Spurt var „Nefndu þrjú atriði sem þér dettur fyrst í hug þegar þú heyrir minnst á Vestfirði“ og tæplega 88% nefndu allavega eitt atriði.

Um netkönnun var að ræða þar sem haft var samband við 1415 manns 18 ára og eldri af öllu landinu handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup, alls svöruðu 822 og var þátttökuhlutfall 58,1%.

 

Niðurstöður könnunarinnar má finna hér

 

Nánari upplýsingar:

Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,

Framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu

sími: 861 4913

Netfang: sirry@vestfirdir.is