Fara í efni

Menningarfulltrúar hittu ráðherra

Fréttir

Menningarfulltrúar landshlutanna og Byggðastofnunar áttu fróðlegan fundardag í Reykjavík á dögunum. Markmið dagsins var að ræða stöðu menningarmála, styrkja tengsl og leita leiða til að auka sýnileika menningar á landsbyggðinni.

Fundur með ráðherra

Dagurinn hófst á fundi með Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Á fundinum var rætt um skýrsluna Stefnumótun og hlutverk menningarstofnana sem unnin var vegna aðgerðar B.9 í Byggðaáætlun. Í skýrslunni má finna upplýsingar um hús sem hýsa menningarstarfsemi um allt land og er markmiðið að skapa sameiginlegan ramma um starfsemi húsanna og styrkja rekstrargrundvöll þeirra til framtíðar. Þá er í skýrslunni leitast við að skilgreina hvað einkennir t.d. starfsemi menningarhúsa, -miðstöðva og félagsheimila svo nokkur dæmi séu nefnd.

Ráðherra var mjög áhugasamur og lagði áherslu á mikilvægi öflugs samstarfs og óskaði eftir að funda oftar með fagfólki sem starfar að menningarmálum á landsbyggðinni.

Menningarklasinn heimsóttur

Næst tók hópurinn þátt í hraðstefnumóti með Menningarklasanum í Austurstræti þar sem markmiðið var að efla tengslanet og auka þannig líkur á samstarfi á sviði menningar og skapandi greina í landsbyggðunum.

Kristjana Rós Guðjohnsen, deildarstjóri menningar og skapandi greina hjá Íslandsstofu tók svo á móti hópnum. Þar var rætt hvernig styrkja mætti böndin milli landshlutanna og Íslandsstofu til að auka sýnileika menningar, lista og skapandi greina um allt land. Kristjana kynnti jafnframt niðurstöður könnunar um þekkingu á Íslandi og íslenskum vörum erlendis.

Hagræn áhrif Hörpu

Heimsóknum dagsins lauk í Hörpu þar sem Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, kynnti nýja skýrslu um Hagræn áhrif Hörpu. Kynningin varpaði skýru ljósi á það hversu mikilvæg menningarstarfsemi og öflugir menningarinnviðir eru fyrir efnahagslífið.