Fara í efni

Matsjáin - uppskeruhátíð og matarmarkaður

Fréttir

Í samstarfi við Samtök smáframleiðenda matvæla lögðu landshlutasamtökin og atvinnuþróunarfélög á öllu landinu inn umsókn í Matvælasjóð sem hlaut brautargengi. Matsjáin hefur þróast í öflugt samstarf þessara aðila úr stuðningsumhverfinu og hefur samstarfið m.a. gengið út á að veita stuðning til matarfrumkvöðla víðs vegar um landið og efla tengslanet þeirra. Að verkefninu koma Samtök smáframleiðenda matvæla, SSNV, SSNE, Austurbrú, Vestfjarðarstofa, SSV, SASS og Heklan atvinnuþróun. RATA sér um verkefnisstjórn.

Verkefnið fékk styrk úr Matvælasjóði árið 2021 sem gerði samstarfsaðilum kleift að ráðast í verkefnið. Afurð verkefnisins er fræðsla fyrir smáframleiðendur til að styðja þá í að auka verðmætasköpun, styrkja stöðu þeirra, efla framleiðslu, auka sölutekjur og styðja við sjálfbærni í rekstri. Markmið stuðningskerfisins er að auka innsýn þátttakenda í rekstur og innviði fyrirtækisins með það fyrir augum að finna leiðir til að auka hagkvæmni, bæta rekstur, auka fagmennsku og innleiða samfélagsábyrgð í fyrirtækin.

Matsjáin fór af stað 6. janúar sl. og hefur nú staðið yfir í 13 vikur. Á þessu tímabili hafa farið fram 7 fræðslufundir með ýmsum fræðsluerindum sem tengjast rekstri smáframleiðenda og 6 heimafundir þar sem matarfrumkvöðlar fara saman yfir verkefni hverrar viku. Nú er komið að lokaviðburði Matsjárinnar, uppskeruhátíð fyrir þátttakendur og matarmarkaður sem opinn verður gestum og gangandi. Uppskeruhátíðin er lokuð og eingöngu ætluð þátttakendum í Matsjánni og félagsmönnum samtaka smáframleiðenda matvæla. Matarmarkaðurinn er hins vegar opinn öllum og verður opinn frá 16:00-18:00.

Frekari upplýsingar veitir:

Agnes Arnardóttir, agnes@vestfirdir.is eða í síma 8950264