Stjórnvöld hafa undirritað nýjan samning við Íslandsstofu um markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Samningurinn er til eins árs og felur í sér 630 milljóna króna framlag til nýs samstarfsverkefnis um markaðssetningu Íslands á erlendum mörkuðum.
Fulltrúar atvinnuvegaráðherra, Íslandsstofu, Samtaka ferðaþjónustunnar og markaðsstofa landshlutanna munu skipa verkefnisstjórn um framkvæmd samningsins. Þar er um að ræða mikilvæga aðkomu landshlutanna að verkefni sem snýr að sameiginlegri ímynd og markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar.
Markaðsstofa Vestfjarða fagnar því að markaðsstofur landshlutanna komi með beinum hætti að framkvæmd verkefnisins. Markaðsstofurnar starfa í nánu samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og hagaðila í ferðaþjónustu um allt land og búa yfir mikilvægri þekkingu á aðstæðum, tækifærum og áherslum hvers landshluta.
Samningurinn er liður í breyttu verklagi við markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Samhliða honum verður unnið að heildarendurskoðun á skipulagi, hlutverkaskiptingu og samningum um opinbera markaðssetningu Íslands. Markmiðið er að skýra ábyrgð, auka samhæfingu og bæta nýtingu fjármuna.
Að mati Markaðsstofu Vestfjarða er mikilvægt að markaðssetning Íslands taki mið af fjölbreytileika landsins og ólíkum styrkleikum landshlutanna. Þannig megi styðja við betri dreifingu ferðamanna, lengingu ferðamannatímabilsins og sjálfbæra uppbyggingu ferðaþjónustu um land allt.
Viðvarandi markaðssetning Íslands sem áfangastaðar skiptir miklu máli fyrir ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Hún getur stutt við markmið um að draga úr árstíðasveiflum, auka verðmætasköpun og skapa sterkari grundvöll fyrir ferðaþjónustufyrirtæki utan háannar.
Þau markmið falla vel að áherslum Markaðsstofu Vestfjarða, sem hefur unnið markvisst að því að efla Vestfirði sem heilsársáfangastað í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila á svæðinu.
Markaðsstofa Vestfjarða lítur á samninginn sem jákvætt skref í átt að samhæfðari og langtímamiðaðri markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Mikilvægt er að sú vinna byggi áfram á virku samtali milli stjórnvalda, Íslandsstofu, ferðaþjónustunnar og landshlutanna.