Fara í efni

Leiðangursskipið SH Vega heimsótti Ísafjörð þrátt fyrir veðurviðvaranir

Fréttir
Heimsókn í SH Vega
Heimsókn í SH Vega

Heimsókn undirstrikar bæði möguleika og áskoranir leiðangurssiglinga á Vestfjörðum

Fimmtudaginn 6. júní lagðist leiðangursskipið SH Vega að bryggju á Ísafirði, þrátt fyrir gular veðurviðvaranir. Heimsóknin var hluti af svokallaðri hagaðilasiglingu á vegum samtaka leiðangursskipafélaga á Norðurslóðum (AECO), þar sem fulltrúar skipafélaga bjóða hagaðilum um borð í hverri höfn til að ræða samvinnu og þróun á þjónustu við leiðangurssiglingar.

Frá Ísafirði tóku á móti fulltrúum AECO og skipafélagsins Swan Hellenic meðal annars fulltrúar frá Náttúruverndarstofnun, Ísafjarðarhöfn og Markaðsstofu Vestfjarða. Fundað var um þróun leiðangurssiglinga á svæðinu og farið í skoðunarferð um skipið.

Þrátt fyrir að svæðið bjóði upp á fjölbreytt tækifæri fyrir leiðangursskip, hefur samdráttur í bókunum gert vart við sig víða um Vestfirði. Í Patreksfirði fækkaði komum úr 30 í fyrra niður í 10 í ár. Sauðfjársetrið á Ströndum fékk átta heimsóknir í fyrra en engar í ár.

Óvissa vegna innleiðingar nýrra innviðagjalda hefur haft áhrif á ákvarðanatöku skipafélaga og er talið að hún hafi átt þátt í þessari þróun. Á Ísafirði hefur uppbygging hafnar og samfélagsverkefna undanfarin ár að stórum hluta verið drifin áfram af komum skemmtiferðaskipa, bókunarstaða frá og með 2027 eru áhyggjuefni.

SH Vega, sem tekur 152 farþega, heldur nú leið sinni áfram til Hríseyjar, Dalvíkur og Húsavíkur og þaðan til Jan Mayen og Svalbarða. Skipið lagði af stað frá Reykjavíkurhöfn á mánudegi, en tvö önnur skip sem áttu að koma til Ísafjarðar ákváðu að fella niður komur vegna veðurs. Þrátt fyrir öldugang var viðkoma við Dynjanda sérstaklega vel metin af farþegum.

Vestfirðir bjóða upp á margvíslega viðkomustaði fyrir leiðangursskip, og flest sveitarfélög á svæðinu hafa tekið á móti slíkum ferðum undanfarin ár. Nauðsynlegt er að tryggja stöðugleika í rekstrarumhverfi greinarinnar og styrkja samstarf hagsmunaaðila ef byggja á upp trausta og sjálfbæra þjónustu til framtíðar.