Fara í efni

Landsskipulagsstefna. Fundur Skipulagsstofnunar 19. mars

Fréttir
Pollurinn á Ísafirði
Pollurinn á Ísafirði

Kynningar- og samráðsfundur um gerð landsskipulagsstefnu á Hótel Ísafirði 19. mars 2019 kl. 14-16.

Skipulagsstofnun stendur fyrir kynningar- og samráðsfundum um landið og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að koma og kynna sér hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.

Dagskrá fundar

-  Lýsing landsskipulagsstefnu, kynning og umræður

-  Umræður um áherslur og aðgerðir í skipulagi um loftslag, landslag og lýðheilsu

 Húsið opnar 13.45 og heitt á könnunni.

Allir velkomnir

Tilefni fundarins er að hafin er vinna við gerð viðauka við gildandi landsskipulagsstefnu þar sem mótuð verður nánari skipulagsstefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.

Lýsing

Lýsing þar sem gerð er grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að mótun stefnunnar liggur frammi til kynningar frá 16. mars til 8. apríl 2019. Lýsingin er aðgengileg á landsskipulag.is. Allir eru hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma á framfæri ábendingum um nálgun og efnistök til Skipulagsstofnunar. Frestur til að koma á framfæri ábendingum er til 8. apríl 2019. Ábendingar þurfa að vera skriflegar og geta borist bréfleiðis til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á landsskipulag@skipulag.is, eða á athugasemdagátt á landsskipulag.is.

 

 Nánari upplýsingar á landsskipulag.is