Starfsfólk Vestfjarðastofu hélt í Borgarnes í síðustu viku þar sem það sótti allsherjarfund landshlutasamtaka sveitarfélaga, markaðsstofanna og Byggðastofnunar sem fram fór dagana 11.-13. nóvember í Hjálmakletti. Þar komu saman fulltrúar alls staðar af landinu sem starfa að atvinnu- og byggðaþróun, farsældar- og menningarmálum, markaðssetningu og öðrum verkefnum sem stuðla að uppbyggingu og þróun landshlutanna.
Vestlendingar voru höfðingjar heim að sækja og buðu upp á fjölbreytta dagskrá þar sem sjónum var beint að stoðkerfi byggðaþróunar, hlutverki þekkingarsetra, samstarfi stofnana og þeim áskorunum og tækifærum sem byggðir landsins standa frammi fyrir. Þá gafst starfsfólki tækifæri til að vinna saman í faghópum og bera saman reynslu af verkefnum á ólíkum starfssviðum.
Á fundinum voru einnig kynnt fjölbreytt byggðaverkefni víðs vegar að af landinu. Fyrir hönd Vestfjarðastofu kynnti Guðrún Anna Finnbogadóttir verkefnið Gullkistuna Vestfirði, sem hefur verið sérlega vel heppnað. Áhugi heimafólks á verkefninu hefur ekki látið á sér standa og á árinu buðu 138 fyrirtæki um alla Vestfirði gestum heim og opnuðu þannig dyrnar að auknum skilningi á ólíkum rekstri sem þrífst í nærumhverfinu. Einn staður er eftir í hringferðinni um Vestfirði og verður boðið heim á Ísafirði á Páskum 2027.

Í tengslum við allsherjarfundinn heimsóttu þátttakendur einnig áhugaverða staði í Borgarbyggð, meðal annars Landbúnaðarsafnið og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, auk þess sem þeir sem það vildu fengu sér bað í Kraumu. Landnámssetrið var einnig heimsótt og þar sátu menningarfrömuðir af Vesturlandi fyrir svörum um mikilvægi þess að hafa lifandi lista- og menningarlíf á landsbyggðinni. Heimsóknirnar voru bæði fróðlegar og skemmtilegar og það er mikið hægt að læra með því að fara í heimsóknir og heyra frá fyrstu hendi reynslu þeirra sem standa að ólíkum verkefnum.

Boðið var upp á glæsilegan sameiginlegan kvöldverð á Hótel Vesturlandi þar sem færi gafst til samfunda utan hefðbundinnar dagskrár. Fundir sem þessir eru mikilvægur vettvangur fyrir starfsfólk sem vinnur að sambærilegum verkefnum um land allt. Þar gefst tækifæri til að bera saman bækur sínar, deila reynslu og þekkingu og þróa samstarf sem getur nýst byggðum og samfélögum um allt land.
