Starf verkefnastjóra verkefnisins Jú víst! Kraftur í Kaldrana (Brothættar byggðir) var auglýst laust til umsóknar í apríl síðastliðnum. Alls sóttu 14 um starfið og hefur Ingibjörg Benediktsdóttir verið ráðin verkefnastjóri á Drangsnesi og mun hefja störf síðsumars.
Ingibjörg er reyndur verkefnastjóri með víðtæka reynslu af stjórnsýslu, byggða- og samfélagsþróun og fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eflingu byggða og þjónustu við íbúa. Ingibjörg hefur leitt og unnið að fjölbreyttum verkefnum í samstarfi við sveitarfélög, stofnanir og atvinnulíf með áherslu á eflingu samfélaga, menntun og sjálfbæra þróun. Síðustu ár hefur Ingibjörg unnið sem verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga og þar leitt og þróað verkefni á sviði menntunar, nýsköpunar og byggðaþróunar. Ingibjörg er með BA gráðu í nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri og hefur stundað nám í Opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands og vinnur að MCM gráðu í áfallastjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Við hjá Vestfjarðastofu bjóðum Ingibjörgu velkomna í hópinn og hlökkum til samstarfsins við hana.