Fara í efni

Íbúakosning um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps

Fréttir

Laugardaginn 14. mars hófst íbúakosning um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem mun standa til laugardagsins 28. mars. nk. Íbúar kjósa í því sveitarfélagi sem þeir eru á kjörskrá í. Hægt er að kjósa á eftirfarandi stöðum:

Í Árneshreppi:
Skrifstofa Árneshrepps er opin á virkum dögum frá kl. 13:00 til 17:00. Að auki verður kjörstaður opinn í Félagsheimilinu í Árnesi laugardaginn 28. mars frá kl. 12:00 – 16:00.

Í Kaldrananeshreppi:
Afgreiðsla í þjónustuveri skrifstofu Kaldrananeshrepps er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 09:00 til 13:00. Að auki verður kjörstaður opinn í Grunnskóla Drangsness laugardaginn 21. mars frá kl. 12:00 til 14:00 og 28. mars frá kl. 10:00 til 16:00.

Póstatkvæðagreiðsla
Þeir sem ekki eiga þess kost að mæta á kjörstað geta greitt atkvæði í póstkosningu á tímabilinu 14. til 28. mars.

Atkvæðagreiðsla með pósti fer þannig fram að kjósandi óskar eftir að fá kjörgögn ásamt leiðbeiningum um skil send til sín í pósti eða tölvupósti. Kjósandi þarf svo að koma atkvæði sínu í hendur kjörstjórnar fyrir lokun kjörstaða kl. 16:00 þann 28. mars nk.

Til að óska eftir kjörgögnum þarf að senda tölvupóst á með nafni og kennitölu á drangsnes@drangsnes.is.