Fara í efni

Íbúakönnun landshlutanna – taktu þátt!

Fréttir

Íbúakönnun landshlutanna er nú í fullum gangi. Könnunin er á vegum Byggðastofnunar, landshlutasamtakanna og atvinnuþróunarfélaga og er hún ætluð öllum íbúum á Íslandi sem náð hafa 18 ára aldri. Tilgangur hennar er að kanna hug íbúa til búsetuskilyrða, aðstæðna á vinnumarkaði og afstöðu til annarra mikilvægra atriða.

Vestfirðingar hafa tekið vel við sér og á þessum tímapunkti hafa 10,4% íbúa yfir 18 ára aldri tekið þátt. En betur má ef duga skal, því vonir eru bundnar við 15% þátttöku. Þess má geta að þegar íbúakönnun landshlutanna var síðast framkvæmd árið 2020 var þátttaka á Vestfjörðum 13,4%.

Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi kannanna sem þessara og því eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til að taka þátt. Eftir því sem fleiri taka þátt og eftir því sem lýðfræðileg dreifing er betri fást greinarbetri niðurstöður um stöðu innan ákveðinna landshluta og mun á milli mismunandi landshluta á Íslandi.

Niðurstöður könnunar eru þýðingarmiklar og veita t.a.m. sveitarstjórnarfólki mikilvægar upplýsingar. Þannig veita þær innsýn í stöðu okkar á landsbyggðinni, hjálpa sveitastjórnarfólki að móta áherslur í starfi sínu og jafnvel hafa þær breytt forgangsröðun í ýmsum verkefnum. Þá hafa þessi gögn nýst inn í hverskonar stefnumótunarvinnu sem landshlutasamtökin hafa sinnt. Að síðustu má svo geta þess að upplýsingarnar eru mjög gagnlegar í hagsmunabaráttu landshlutanna.

Fyrir þá sem vilja taka þátt í könnunni er hægt að gera svo með því að smella hér fyrir íslensku

Regional resident survey – English

Regionalna ankeietadla mieszkanów Islandii – Polski