Fara í efni

Hvernig getur stefnumótun stutt samfélagslega nýsköpun?

Fréttir MERSE

Vestfjarðastofa tekur þátt í NPA-verkefninu MERSE, sem beinir sjónum að samfélagslegri nýsköpun í dreifðum byggðum. Verkefnið spannar fimm lönd þar sem þróun samfélagslegrar nýsköpunar er mislangt komin innan stjórnsýslunnar.

Á meðan Ísland er að stíga fyrstu skrefin í að festa hugtakið í sessi, hefur verið mótuð heildstæð stefna um samfélagslega nýsköpun á Írlandi. Í Svíþjóð hafa svæði og sveitarfélög á borð við Örebro og Nordanstig náð góðum árangri með því að fella samfélagslega nýsköpun inn í stefnumótun sína og daglegan rekstur.

Þriðjudaginn 27. maí verður haldinn alþjóðlegur vefviðburður þar sem fulltrúar þessara svæða segja frá sinni vegferð – frá hugmynd að stefnu og aðgerðum. Eftir erindi verður opið fyrir spurningar og umræður. Fundurinn hefst kl. 8:30 og lýkur kl.10. 

Á dagskrá:

  • Reynslusögur frá sveitarfélögum í Svíþjóð
  • Samráðshópar eftir löndum – samtal og dýpkun
  • Innsýn í stefnumótun frá rannsakendum og frumkvöðlum
  • Tækifæri til að móta framtíð samfélagslegrar nýsköpunar

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á samfélagslegri nýsköpun, stefnumótun og þróun dreifbýlis til að taka þátt.

Skráning hér