Fara í efni

Hugverkaréttindi í nýsköpun og rekstri

Fréttir

Hugverkaréttindi í nýsköpun og rekstri - einkaleyfi, vörumerki og hönnun

Vestfjarðastofa ásamt Hugverkastofu og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa fyrir hádegiserindi miðvikudaginn 7 júní n.k kl:12:00 á skrifstofu Vestfjarðastofu, Suðurgötu 12, Ísafirði.

Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar, ætlar að fara yfir einkaleyfi, skráningu vörumerkja og hönnun. Rætt verður af hverju fyrirtæki og einstaklingar ættu að vernda hugverk sín með skráningu, hvernig þau eru skráð og fleira.

Kerecis verður einnig með erindi þar sem þau fara yfir hvernig þau nota þessi hugverkaréttindi í sínum viðskiptum.

Viðburðurinn er öllum opin og léttar veitingar í boði

Skoða á viðburðardagatali