Fara í efni

Hugsum hærra í janúar!

Fréttir

Ráðgjafafyrirtækið Senza, SSNV og Vestfjarðarstofa standa fyrir hraðlinum Hugsum hærra fyrir fyrirtæki á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Í hraðlinum fá starfandi fyrirtæki sem vilja hugsa hærra aðstoð við að vinna fjárfestakynningar, móta stefnu og ramma inn viðskiptaáætlun. Sérstök áhersla er að styrkja fyrirtæki í gerð umsókna í nýsköpunarsjóði.*

Hraðallinn hefst 7. janúar á kynningarfundi og netnámskeiði. Vinnustofur standa yfir í þrjá daga, í vikunni 11-15. janúar (sjá dagskrá). Einar Sigvaldason, MBA, stjórnendaþjálfi og ráðgjafi hjá Senza Partners leiðir hraðallinn. Einar hefur starfað í nýsköpun í 15 ár, sem framkvæmdastjóri og meðstofnandi þriggja sprotafyrirtækja á hugbúnaðarsviði og hefur fimm sinnum fengið Rannís styrki fyrir eigin fyrirtæki og tvisvar sprotafjármögnun.

Hraðallinn felur í sér:

· Einkaráðgjöf (3-4 klst per teymi)

· Ítarlegt netnámskeið (3 klst) í umsóknarskrifum í Rannís sjóði. Nánari upplýsingar HÉR

· Fyrirlestrar: Fjárfestakynningar, stefnumótun og viðskiptaáætlanir.

· Eftirfylgni í þrjá mánuði eftir að hraðlinum lýkur. Nánari upplýsingar um hraðalinn má nálgast á vefsíðu Senza

Leitað er eftir fyrirtækjum sem huga að efla starfsemi sína. Miðað er við að fyrirtæki séu nú þegar starfandi með vöru eða þjónustu á markaði. Vestfjarðarstofa og SSNV niðurgreiða hraðalinn þannig að þátttökugjald er 45.000 kr. per fyrirtæki sem tekur þátt í hraðlinum. Athugið að stéttarfélög niðurgreiða í mörgum tilvikum allt að 90% af þátttökugjaldi

Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2020. Umsóknareyðublað má finna HÉR

*Samkeppnissjóðir Rannís, Tækniþróunarsjóður (áhersla á Sprota og Vöxt), Matvælasjóður og Evrópustyrkir.

Tímalína