Fara í efni

Hlutverk sveitarfélaga í grænum umskiptum – lokavefviðburður RECET

Fréttir RECET

Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í grænum umskiptum, en mörg minni sveitarfélög búa við takmarkaða getu, fámennt starfslið og takmarkaðan aðgang að sérfræðiþekkingu.

Á lokavefviðburði RECET koma saman sérfræðingar og fagfólk frá Íslandi, Svíþjóð, Spáni og Slóveníu til að ræða hvernig sveitarfélög geta styrkt hlutverk sitt í grænum umskiptum. Fjallað verður meðal annars um staðbundna þátttöku, uppbyggingu getu og loftslagsaðgerðir sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað.

Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, mun einnig taka þátt í viðburðinum og fjalla um reynslu og niðurstöður RECET-verkefnisins á Íslandi.

Viðburðurinn er sérstaklega áhugaverður fyrir sveitarstjórnarfólk, starfsfólk sveitarfélaga, fagfólk á sviði byggðaþróunar, rannsakendur og aðra sem starfa að orku- og loftslagsmálum.

Þátttaka er ókeypis.

Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig.