Fara í efni

Fyrstu ferðirnar staðfestar í kjölfar markaðsstarfs á Asíumarkaði

Fréttir Markaðsstofa Vestfjarða Heilsársferðaþjónusta
Starfsmenn Kuoni Tumlare við Dynjanda
Starfsmenn Kuoni Tumlare við Dynjanda

Dagana 28. til 30. október tók Markaðsstofa Vestfjarða á móti tveimur fulltrúum alþjóðlega ferðaþjónustufyrirtækisins Kuoni Tumlare í kynnisferð um Vestfirði. Heimsóknin var hluti af vetrarverkefni Markaðsstofunnar, þar sem unnið er að því að lengja ferðatímabilið, byggja upp ný viðskiptasambönd og fjölga ferðamönnum utan háannatíma.

Fulltrúarnir starfa hjá þeim hluta Kuoni Tumlare sem hefur meðal annars lagt sérstaka áherslu á ferðir frá Japan og Taívan til Íslands. Báðir markaðirnir eru áhugaverðir fyrir Vestfirði, ekki síst vegna tækifæra til að þróa ferðir utan hefðbundins sumartíma.

Hittu 18 vestfirsk ferðaþjónustufyrirtæki

Á þremur dögum hittu fulltrúar Kuoni Tumlare fulltrúa 18 vestfirskra ferðaþjónustufyrirtækja og kynntust þeirri fjölbreyttri þjónustu sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Flest fyrirtækin voru heimsótt á ferðalaginu, en einnig voru skipulagðir stuttir kynningarfundir þar sem ferðaþjónustuaðilar fengu tækifæri til að kynna vörur sínar og ræða mögulegt samstarf beint við gestina.

Ferðin lá um Vestfjarðaleiðina. Áhersla var lögð á að kynna afþreyingu, gistingu og aðra þjónustu, auk þess að gefa gestunum góða mynd af samgöngum og möguleikum til að skipuleggja ferðir um svæðið.

Slíkar kynnisferðir eru mikilvægur þáttur í markaðsstarfi gagnvart erlendum ferðaskipuleggjendum. Með því að upplifa svæðið sjálfir öðlast þeir betri þekkingu á þjónustunni og geta í framhaldinu þróað ferðir sem byggja á raunverulegum aðstæðum og samstarfi við heimafyrirtæki.

Fyrstu niðurstöður farnar að sjást

Samstarfið við Kuoni Tumlare er þegar farið að skila fyrstu niðurstöðum. Ein ferð til Vestfjarða árið 2027 er nú staðfest og uppseld og önnur ferð hefur verið sett í sölu.
Þetta eru fyrstu skrefin í samstarfi sem Markaðsstofan vonast til að þróa áfram á næstu árum.
Sérstök áhersla er lögð á að lengja ferðatímabilið á Vestfjörðum. Meðal þeirra tækifæra sem verið er að skoða eru ferðir frá miðjum september og fram í nóvember og aftur frá febrúar fram í apríl. Með því mætti nýta betur þá innviði og þjónustu sem þegar eru til staðar og skapa aukin umsvif á tímabilum þegar ferðamenn eru færri.
Fulltrúar Kuoni Tumlare voru ánægðir með heimsóknina og héldu af svæðinu með fjölmargar nýjar hugmyndir að ferðum og mögulegu samstarfi við vestfirsk fyrirtæki.

Vetrarferðaþjónusta er langtímaverkefni

Undanfarin misseri hefur Markaðsstofa Vestfjarða lagt aukna áherslu á markaðsstarf í Asíu, meðal annars með þátttöku í vinnustofum Kuoni Tumlare í Taípei, Osaka og Tókýó í febrúar síðastliðnum.
Markmiðið er að byggja upp tengsl við erlenda ferðaskipuleggjendur sem hafa áhuga á að bæta Vestfjörðum við sitt vöruframboð og skapa þannig ný tækifæri fyrir vestfirsk ferðaþjónustufyrirtæki.

Uppbygging ferðaþjónustu utan háannatíma er hins vegar langtímaverkefni. Það tekur tíma að kynna nýjan áfangastað, byggja upp traust og þróa ferðir sem henta bæði erlendum mörkuðum og þeirri þjónustu sem er í boði á svæðinu.

Kynnisferðir á borð við þessa eru því mikilvægur liður í þeirri vinnu. Þær skapa bein tengsl milli erlendra kaupenda og vestfirskra fyrirtækja og gefa tækifæri til að þróa samstarf sem getur skilað auknum umsvifum á komandi árum.

Fyrstu ferðirnar eru nú komnar í sölu og árangurinn farinn að sjást, en áframhaldandi uppbygging mun byggjast á þolinmæði, samstarfi og markvissri eftirfylgni.