Fréttabréf Vestfjarðastofu fyrir septembermánuð er komið út. Haustið er komið með tilheyrandi haustlægðum og er árstíðin oftar en ekki sú annasamasta á Vestfjarðastofu, nema þegar vorið ryðst fram með látum.
Í fréttabréfinu er meðal annars fjallað um staðfestingu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025–2050, sem nú tekur við að fylgja eftir. Það segir frá Ungmennaþingi Vestfjarða á Suðureyri þar sem um 40 ungmenni af öllum Vestfjörðum komu saman. Menningin á líka sinn sess, en fjallað er um endurvakningu Félags vestfirskra listamanna sem hélt vel sótt Listamannaþing á Ísafirði. Einnig er fjallað um hugmyndasamkeppni Hafna Ísafjarðarbæjar um nýtt útilistaverk.
Að venju er víða komið við, sagt er frá verkefnum á sviði nýsköpunar og atvinnuþróunar, Gullkistkunni á Hólmavík, Brothættum byggðum á Tálknafirði, samstarfi um kynslóðaskipti fyrirtækja í dreifðum byggðum og þátttöku Markaðsstofu Vestfjarða á Vestnorden í Nuuk, þar sem yfir 30 fundir voru haldnir með erlendum kaupendum og samstarfsaðilum.
Fréttabréf Vestfjarðastofu - september 2026
Hægt er að skrá sig á póstlista og fá fréttabréfið beint í tölvupósti en einnig má alltaf nálgast það á heimasíðu Vestfjarðastofu.