Fréttabréf Vestfjarðastofu fyrir marsmánuð er komið út. Það er uppfullt af fréttum af mörgu því er starfsfólk tók sér fyrir hendur í mánuðinum. Þar má lesa um ferð verkefnastjóra RECET til Menorka, heimsóknir verkefnastjóra innan Vestfjarða og heimsóknir gesta til okkar. Mikið er fjallað um hvaða unga fólkið á Vestfjörðum er að fást við, til dæmis í gegnum kvikmyndagerðarnámskeið á Púkanum, verkefni ungmennaráðs Vestfjarða og Vörumessu MÍ. Að vanda er að finna pistla frá framkvæmdastjóra og formanni stjórnar Vestfjarðastofu. Þar er margt annað sem þið getið dundað ykkur við að lesa í páskafríinu og með þessu sendum við ykkur bestu óskir um gleðilega páska.
Hægt er að skrá sig á póstlista (Skráning á póstlista hér) og fá bréfið beint í tölvupósti en alltaf má líka nálgast fréttabréfið hér á síðu Vestfjarðastofu.