Fara í efni

Fréttabréf á aðventu

Fréttir

Eins og glöggir lesendur fréttabréfs Vestfjarðastofu tóku eftir, þá kom ekkert fréttabréf út á lokadegi nóvember mánaðar. Það var nú gild ástæða fyrir því en það var bara svo mikið skemmtilegt í gangi hjá okkur í kringum mánaðarmótin að okkur þótti tilvalið með að bíða með útgáfu fréttabréfsins og segja ykkur frá því núna.

Í fréttabréfinu förum við yfir það sem gekk á í nóvember ásamt að líta um öxl en Vestfjarðastofa varð fimm ára 1. desember sl.. Einnig förum við yfir úthlutanar úr Uppbyggingarsjóð Vestfjarða fyrir árið 2023.

Það er því tilvalið að ná sér í góðan kaffibolla já eða heitt kakó og piparkökur og setjast niður og njóta lestursins.

Njótið aðventunnar

Fréttabréfið má finna hér----> aðventa 2022

Við mælum með því að skrá sig á póstlistinn hjá okkur til þess að missa ekki af fréttum af okkur.
Skráning á póstlista