Fara í efni

FRESTUN -Stefna og framtíðarsýn í íslenskra ferðaþjónustu

Fréttir

Fjórðungssamband Vestfirðinga og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða í samvinnu við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar, boða til fundar um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu, fimmtudaginn 28. maí nk. kl. 10.00 – 12.00 í fundarsal Háskólaseturs á Ísafirði.

 

Á fundinum verður rætt um framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu og kallað eftir ábendingum þátttakenda. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og stuðla þannig að bættum lífskjörum í landinu. Mikilvægt er að haghafar í ferðaþjónustu hafi aðkomu að verkefninu og geti komið á framfæri ábendingum og leiðum til að efla ferðaþjónustuna og gera hana alþjóðlega samkeppnishæfa.  

 

Verkefnahópi ráðuneytisins og Samtaka ferðaþjónustunnar er ætlað gera tillögu að stefnu og framtíðarsýn til lengri tíma og aðgerðaráætlun til skemmri tíma. Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í byrjun júní n.k.


Vonast er til að þú hafir lausa stund til þess að mæta. Það er vel þegið að þú takir með þér þá starfsmenn sem koma að þessum málaflokki.

 

Miklar væntingar eru um víðtækt samstarf við mótun stefnunnar.

Hlökkum til að hitta þig.

 

Skráning á fundinn er í netfangið travel@westfjords.is