Fara í efni

Fjöruferðir - Finn ég þig í fjörumó?

Fréttir Westfjords Food

Vestfjarðastofa stendur fyrir fjöruferðum. Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumeistari og Eydís Mary Jónsdóttir land- og umhverfisfræðingur, höfundur bókarninnar Íslenskir Matþörungar, munu bjóða gestum og gangandi í fjörumó og leiða þá inn í gómsætan heim íslenskra matþörunga. Þau munu kenna hvernig þekkja má algengustu matþörungana, hvernig má tína þá og verka á sjálfværan hátt ásamt því að gefa hugmundir að því hvernig má nota þá í matargerð.

Farnar verða þrjár fjöruferðir á Vestfjörðum

Föstudagur: Hólmavík 

  • Mæting í Húsavík, við Steingrímsfjörð kl 16:00  

Laugardagur: Ísafjörður 

  • Mæting við Arnarnes, í Skutulsfirði, farið niður í fjöru fyrir neðan Fjósið í Arnardal kl 15:15 

Sunnudagur: Vatnsfjörður, Barðaströnd 

  • Mæting á bílastæðið við Gíslahelli, Hörgsnesi kl 13:30 

Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímalega og klæða sig eftir veðri, vera í vatnsheldum skóm, helst stígvélum, og hafa með sér poka til að safna í. 

Þátttaka ókeypis og þátttakendur eru hvattir til að virða 2 metra regluna