Fara í efni

Fjórðungsþing í dag 4. maí

Fréttir

Miðvikudaginn 4. maí 2016 er  61. Fjórðungsþing Vestfirðinga haldið í Edinborgarsalnum á Ísafirði og að venju fjölmenna sveitarstjórnarmenn af öllum Vestfjörðum á það. Fært er um alla Vestfirði, þrátt fyrir lítilsháttar hret síðustu daga. Þingið verður með breyttu sniði þetta árið, í samræmi við nýjar samþykktir, en í framtíðinni verður ársfundur á vorin og síðan haustþing um einhver tiltekin málefni sem ákveðin eru á vorþinginu. Á þinginu á Ísafirði verða afgreiddir ársreikningar og árskýrslur og lögð fram endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár. Kosið verður í stjórnir og nefndir, en kjörtímabil er tvö ár hjá Fjórðungssambandinu.

 

Það verður nóg að gera hjá sveitarstjórnarfólki því alls verða þrír ársfundir haldnir þennan dag á Ísafirði, aðalfundur Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, Fjórðungsþing Vestfirðinga og ársfundur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.