Fara í efni

Fjórðungssamband Vestfirðinga fagnar sértækum aðgerðum í byggðamálum

Fréttir

Í tilefni fréttar á visir.is í dag 25. nóvember, vill Fjórðungssamband Vestfirðinga samfagna sveitarfélögum á Norðurlandi vestra með þann árangur sem þau hafa náð í samstarfi við stjórnvöld, um fjárveitingar til uppbyggingar á sviði nýsköpunar, menningar og í heilbrigðisþjónustu landshlutans. Það er hinsvegar miður að ekki er tekið á tilllögum um tilflutning opinberra starfa sem var annað meginhlutverk samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

 

Fjórðungssamband Vestfirðinga leggur í framhaldinu áherslu á að ríkisstjórnin taki á sambærilegan hátt á þeim sértæka vanda sem langvarandi fólksfækkun veldur á svæðum eins og á Vestfjörðum og víðar. Mótaðar tillögur um verkefni á Vestfjörðum á sviði nýsköpunar og menningar liggja fyrir í Sóknaráætlun Vestfjarða auk áherslna um fjölgun opinberra starfa á sértækum starfssviðum. Úr þeim tillögum er hægt að vinna úr á tiltölulega skömmum tíma, nú þegar vilji stjórnvalda liggur fyrir um veita slíkum verkefnum brautargengi með ásættanlegum fjárveitingum.