Fara í efni

Fjölmennur fræðslufundur um almyrkva sólu

Fréttir

Um 80 manns mættu á opinn fræðslufund um almyrkva sólu sem haldinn var í Bryggjusalnum í Edinborgarhúsinu föstudaginn 8. maí. Fundurinn var haldinn af Stjörnu Sævari, Markaðsstofu Vestfjarða og Ísafjarðarbæ og var ætlaður íbúum á Vestfjörðum.

Á fundinum fór Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, yfir helstu atriði sem tengjast almyrkvanum sem verður sýnilegur á Vestfjörðum 12. ágúst 2026. Hann fjallaði meðal annars um hvað gerist þegar almyrkvi verður, hvernig best er að upplifa þetta einstaka náttúrufyrirbæri og hvernig hægt er að fylgjast með því á öruggan hátt.

Fulltrúi Markaðsstofu Vestfjarða fór einnig yfir undirbúning á svæðinu og þau atriði sem íbúar og gestir þurfa að hafa í huga þegar nær dregur. Þar var meðal annars farið yfir mikilvægi þess að kynna sér aðstæður, skipuleggja ferðalög vel og fylgjast með upplýsingum frá viðeigandi aðilum.

Almyrkvinn verður lengstur á Íslandi við Látrabjarg í Vesturbyggð, þar sem almyrkvinn varir í 2 mínútur og 13 sekúndur. Ef vel viðrar má því gera ráð fyrir að Vesturbyggð verði einn vinsælasti áfangastaður almyrkvaunnenda sem leggja leið sína á Vestfirði. Þetta verður fyrsti almyrkvi á sólu á Vestfjörðum síðan 30. mars 1131.

Alskuggi tunglsins verður yfir Vestfjörðum í 3 mínútur og 27 sekúndur. Hann snertir fyrst Straumnes á Hornströndum kl. 17:43:28 og yfirgefur Vestfjarðarkjálkann við Sigluneshlíðar við Barðaströnd kl. 17:46:54.

Fundurinn var gott tækifæri fyrir íbúa til að fræðast, spyrja spurninga og undirbúa sig fyrir viðburð sem má með sanni kalla einstakt tækifæri.

Ferðalangar sem hyggjast leggja leið sína til Vestfjarða vegna almyrkvans eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar frá Vestfjarðastofu.

Nánari upplýsingar og fróðleik um almyrkvann má finna á solmyrkvi2026.is.

Gagnlegar upplýsingar um almyrkvann á Vestfjörðum má einnig finna á westfjords.is.