Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 170 milljónum kr. til fjórtán fjölbreyttra verkefna til að efla viðkvæmar byggðir landsins. Framlag til styrkjanna kemur af byggðaáætlun (aðgerð C.1 – Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða) en alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 m.kr. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar.
Markmiðið með aðgerðinni er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar eru í forgangi. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.
Fjórir styrkir að heildarupphæð 56 m.kr komu í hlut verkefna á Vestfjörðum:
Nytjajurtir til nýsköpunar
- Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
- Styrkupphæð: 9 m.kr.
Markmiðið er að byggja upp sjálfbæra ræktun burnirótar og annarra heilsubótarplantna á Vestfjörðum. Burnirót er á verndarlista vegna ágengrar nýtingar og eingöngu er heimilt að selja unnar afurðir úr ræktun. Ræktun burnirótar skapar nýja verðmæta tegund landbúnaðar með betri landnotkun og styrkir byggðafestu til langtíma.
Matarkista Breiðafjarðar. Matvælasetur í Króksfjarðarnesi
- Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
- Styrkupphæð: 20 m.kr.
Verkefnið felst í uppbyggingu matvælaseturs á Króksfjarðarnesi í Reykhólahreppi til að styðja við matvælanýsköpun og atvinnuuppbyggingu með framleiðslu „Beint frá býli“. Setrið mun bjóða upp á vottaða framleiðsluaðstöðu, framleiðslutæki og vinnslurými fyrir bændur og frumkvöðla til þróunar og framleiðslu á frum- og lokaafurðum í atvinnuskyni, s.s. landbúnaðarafurðum og sjávarafurðum skelfisk, þangs og þara.
Þróunarfélag Króksfjarðarness. Uppbygging atvinnu, þjónustu og íbúðarbyggðar á Króksfjarðarnesi
- Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
- Styrkupphæð: 11 m.kr.
Verkefnið snýr að því að fjármagna þróunarfélag sem hefur það markmið að markaðsetja Króksfjarðarnes sem ákjósanlegan fjárfestingarkost með samningum við uppbyggingar aðila. Króksfjarðarnes er anddyri Vestfjarða og svæði með gífurleg tækifæri til framtíðaruppbyggingar. Í kringum Króksfjarðarnes er að finna ónýttan jarðvarma sem getur nýst til margskonar atvinnustarfsemi í ferðþjónustu, landbúnaði og eldi.
Kuklið – þróun og efling frumkvöðlaseturs matvæla á Ströndum
- Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV)
- Styrkupphæð: 16 m.kr.
Verkefnið felst í að efla og þróa frumkvöðlasetrið Kuklið á Ströndum á þriggja ára tímabili með ráðningu verkefnastjóra sem hefur það hlutverk að virkja og móta starfsemi setursins. Byggt er á innviðum sem hafa verið fjármagnaðir áður og lögð áhersla á að styðja við matvælafrumkvöðla, styrkja nýsköpunarumhverfi Stranda og skapa forsendur fyrir sjálfbæran rekstur til framtíðar.
Fréttin byggir á frétt Stjórnarráðsins um styrkúthlutunina sem má lesa í heild sinni hér.