Fara í efni

Fjársjóður fjalla og fjarða úthlutar úr frumkvæðissjóði í annað sinn

Frá afhendingunni. Mynd: Sveinn Ragnarsson
Frá afhendingunni. Mynd: Sveinn Ragnarsson

 

Þann 10. júní sl. fór fram úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs Fjársjóðs fjalla og fjarða. Að þessu sinni fór athöfnin fram í Bjarkarlundi. Vel var mætt og ríkti gleði og bjartsýni meðal gesta. Verkefnið Fjársjóður fjalla og fjarða er hluti af Brothættum byggðum.

Fjöldi umsókna

Alls bárust 32 umsóknir í frumkvæðissjóðinn að þessu sinni sem ber vitni um þann kraft og frumkvöðlaanda sem býr í íbúum og samfélaginu í Reykhólahreppi. Heildarupphæð umsókna nam 56.000.700 kr. og samanlagður heildarkostnaður verkefnanna var 163.810.600 kr.

Af þeim umsóknum sem bárust hlutu 30 verkefni styrk og var samtals úthlutað 11.500.000 kr. úr sjóðnum. Verkefnin sem hlutu styrk eru fjölbreytt og endurspegla þann metnað og sköpunarkraft sem einkennir samfélagið, allt frá menningar- og samfélagsverkefnum til atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og ferðaþjónustu.

Þakkir til verkefnisstjóra

Embla Dögg Bachmann verkefnisstjóri stýrði úthlutunarathöfninni af myndugleik en hún hefur sagt starfi sínu lausu og hyggst hverfa til annarra verkefna. Eru henni þökkuð góð störf í þágu Fjársjóðs fjalla og fjarða á þessu fyrsta starfsári verkefnisins og gott samstarf.

Styrkþegar 2026

Verkefnisstjórn Fjársjóðs fjalla og fjarða óskar öllum styrkþegum innilega til hamingju með styrkina og hlakkar til að fylgjast með framgangi verkefnanna á komandi misserum. Verkefni sem hlutu brautargengi að þessu sinni eru eftirfarandi:

Nafn styrkþega

Heiti verkefnis

Styrkupphæð

Konráð Ari Skarphéðinsson

A Promotional Children's Book for Reykhólar

150.000 kr.

Lovísa Ósk Jónsdóttir

Augnablik í Reykhólahreppi

50.000 kr.

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum

Braggi á Reykhólum, endurbætur og lagfæringar

700.000 kr.

Guðmundur Ólafsson

Dráttarvélasafn

200.000 kr.

Bakka-búðin ehf.

Efling samfélagslegrar aðstöðu og miðlunar

350.000 kr.

Framfarafélag Flateyjar

Eyjaþing 2026

250.000 kr.

Leifur Samúelsson

Fjölgun gistirýma, næsta skref

750.000 kr.

Gálgaklettur ehf.

Gufsan, áframh. uppbygging

300.000 kr.

Þóra Mjöll Jensdóttir

Kaffi í kyrrðinni

500.000 kr.

Eydís Sunna Harðardóttir

Litli Tindar

100.000 kr.

Lovísa Ósk Jónsdóttir

Ljósmyndaprentari fyrir Augnablik

100.000 kr.

Eydís Örk Sævarsdóttir

Matarkista Breiðafjarðar

1.500.000 kr.

Björn Samúelsson

Miðaldavirki á Kaldrana á Reykhólum

350.000 kr.

TogG Miðjanes ehf.

Miðjanes tjaldstæði

300.000 kr.

Guðlaug G.I.M. Bergsveinsdóttir

Örlaganorn að störfum

600.000 kr.

Ísak Logi Brynjólfsson

Rakarastóll

150.000 kr.

Gyða Steinsdóttir

Saga Flateyjarkirkju, ljósmyndasýning

150.000 kr.

Saltaðarpíkur, sjósundsfélag

Sjósundsaðstaða við Seljanes

250.000 kr.

Mussel Company

Skelsetur Íslands

300.000 kr.

Skógræktarfélagið Björk í Reykhólahreppi

Söguskilti og áningapallar

300.000 kr.

Kolbeinn Óskar Bjarnason

Steypt dansgólf

250.000 kr.

Vinafélag Barmahlíðar

Styrkur fyrir tækjakaupum Barmahlíðar

200.000 kr.

Bakka-búðin ehf.

Trúbadúrakvöld í Búðinni – lifandi tónlist og samfélagsleg samvera

250.000 kr.

Úr sveitinni ehf.

Ullarvinnsla í Reykhólahreppi, næstu skref

450.000 kr.

Andrea Björnsdóttir

Uppbygging gistirýma á Skálanesi

750.000 kr.

Bakka-búðin ehf.

Uppfærsla á aðstöðu til matvælavinnslu og veitingasölu

400.000 kr.

Arnkatla lista- og menningarfélag

Útitónleikahald í Bjarkalundi

800.000 kr.

Tómas Sigurgeirsson og Svanhildur Sigurðardóttir

Varðveisla sögu Sjóvarshúss

300.000 kr.

Guðjón D. Gunnarsson

Verdigo áburðarrannsókn

600.000 kr.

Vinafélag Barmahlíðar

Viðburðir fyrir heimilisfólk Barmahlíðar

150.000kr.