Fara í efni

Breytingar á starfsemi vegna Covid-19

Fréttir

Vegna ráðstafana til að verjast Covid-19 kórónaveirunni hefur starfsemi  Vestfjarðastofu verið breytt og skrifstofum verið lokað tímabundið fyrir öðrum en starfsfólki. Öll fundahöld sem áttu að fara fram á starfsstöðvum Vestfjarðastofu verða færð yfir í fjarfund eða þeim frestað. Engir fundir eru því á skrifstofunum og engum utanaðkomandi hleypt þangað inn.

Starfsmenn bjóða viðtöl í fjarfundi, síma eða tölvupósti og sinna öllum verkefnum eftir sem áður. 

Unnt verður að ná sambandi við starfsmenn á hefðbundnum skrifstofutíma, 08:00-16:00 í gegnum beint símanúmer eða með tölvupósti.

Símanúmer og netföng starfsfólks