Barnamenningarsjóður úthlutaði síðasta sunnudag styrkjum til 43 verkefna á sviði barnamenningar. Alls var úthlutað um 90 milljónum króna. Fimm vestfirsk verkefni hlutu styrk í ár sem telja verður vísbendingu um góða grósku í barnamenningu á Vestfjörðum.
Verkefnin eru:
- Fjallið Þorfinnur ehf - Listasmiðja ListaVestursins - kr.1.000.000
- Púkinn barnamenningarhátíð (Vestfjarðastofa) - Skapandi framtíð púkanna á Vestfjörðum kr. 6.000.000
- Tungumálatöfrar - Listasmiðjur á Tungumálatöfrum - kr. 1.800.000
- Act alone - Barnadagskrá Act Alone - kr. 900.000
- Edinborgarhúsið - Skapandi laugardagar í Edinborgarhúsinu - kr. 1.000.000
Barnamenningarhátíðin Púkinn er í umsjón Vestfjarðastofu. Framtíðin er þema barnamenningarhátíðarinnar Púkans 2027. Hátíðin fer fram um alla Vestfirði dagana 26. apríl–7. maí 2027 og býður grunnskólabörnum upp á skapandi og listræna þátttöku með myndlistarmönnum.
Börnum á grunnskólaaldri verður boðið til þátttöku í skapandi listverkefnum í samstarfi við starfandi myndlistarmenn. Hátíðin nær til barna í öllum sveitarfélögum Vestfjarða og tryggir þannig jafnt aðgengi að vönduðu liststarfi óháð búsetu. Þema hátíðarinnar er framtíðin, sem valið var af Ungmennaráði Vestfjarða, og verður unnið með í gegnum myndlist á öllum skólastigum. Sérstök áhersla er lögð á unglingastig, þar sem nemendur taka þátt í markvissri hugmynda- og sköpunarvinnu með það að markmiði að þróa og raungera eigin listaverk í sínu nærumhverfi. Á unglingastigi verða haldnar svæðisbundnar smiðjur með myndlistarfólki á þremur stöðum á Vestfjörðum – að Hnjóti, á Galdrasýningunni á Ströndum og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar vinna ungmenni saman að hugmyndavinnu og skissugerð undir handleiðslu listamanna. Í framhaldi af því eru hugmyndirnar útfærðar í heimabyggð, þar sem nemendur vinna að gerð vegglistaverka í almannarými með áframhaldandi handleiðslu. Í smærri skólum getur þátttaka náð til miðstigs.
Gaman er að sjá hversu fjölbreytt barnamenning er á Vestfjörðum og við á Vestfjarðastofu óskum öðrum styrkhöfum innilega til hamingju með árangurinn.