Fara í efni

Aukaúthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða

Fréttir

Úthlutað hefur verið úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Þetta er aukaúthlutun og voru 13 milljónir króna til úthlutunar. Úthlutunarnefnd, sem er skipuð níu manns víðsvegar að úr fjórðungnum, átti ekki auðvelt verk fyrir höndum, því 52 umsóknir bárust og voru margar mjög spennandi hugmyndir að baki þeim. Ákveðið var að veita 11 verkefnum styrk og má sjá lista fyrir þau hér fyrir neðan. Næsta úthlutun verður svo væntanlega auglýst í nóvember, en það er aðalúthlutun fyrir árið 2018.

 

3.500.000 kr.

Félag um lýðháskóla á Flateyri  (Runólfur Ágústsson/Óttar Guðjónsson) 

 

3.000.000 kr.

Strandbúnaðarklasi  (Smári Haraldsson, f.h. tilvonandi hlutafélags)         

 

2.000.000 kr.

Hrognkelsi – Lífræna lúsaætan (Lúsinfer)  (Akvaplan-niva, útibú á Íslandi)         

 

1.500.000 kr.

Undirbúningur þörungaseturs Reykhólum  (Þörungaverksmiðjan Reykhólum)

 

500.000 kr.

Gúmmísökka  (Steinþór Bragason)

Sýningin Raddir, Harmónikusafn Ásgeirs S Sigurðssonar  (Byggðasafn Vestfjarða)

Gimli: Þjóðmenningarskóli Ströndum norður  (Elín Agla Briem)

 

400.000 kr.

LÚR Listahátíð ungs fólks  (Menningarmiðstöðin Edinborg)

Víkingahátíð og viðburðir  (Marsibil G Kristjánsdóttir)

Þuríðarskart og seiðkonukrydd  (Þuríður sundafyllir ehf)

 

300.000 kr.

Samtal - fólk og fræði (Fjölmóður - fróðskaparfélag á Ströndum)