Fara í efni

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna í tengslum við verkefnið Sterkar Strandir

Umsóknarfrestur er til 12 á hádegi 10. mars 2021.

Til ráðstöfunar eru 7 milljónir króna í þessari úthlutun. Verkefnum sem verða styrkt að þessu sinni þarf að vera lokið í síðasta lagi 31. desember 2021, og eru umsækjendur beðnir um að hafa það að leiðarljósi við gerð umsókna.

Meginmarkmið verkefnisins sem umsóknir þurfa að taka mið af:

  • Sterkir innviðir og öflug þjónusta
  • Stígandi í atvinnulífi
  • Stolt og sjálfbært samfélag                                                                                                                                                                                                                                                                     

Á vefsíðu Byggðastofnunar má finna nánari reglur um styrkveitingar. Á vef Vestfjarðarstofu, undir verkefninu Sterkar Strandir, má finna umsóknareyðublaðið og þar er sótt um. Athugið að einungis er hægt að sækja um á netinu. Ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda. Samstarf aðila sem að jafnaði starfa ekki saman styrkir umsóknina. Umsækjendur eru hvattir til að lesa leiðbeiningar og leita sér aðstoðar hjá verkefnisstjóra. Vönduð umsókn sem styður við framtíðarsýn og meginmarkmið verkefnisins er líklegri til árangurs. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með framgangi verkefnisins á netmiðlum, til að mynda á vef Vestfjarðastofu og á Facebooksíðu Sterkra Stranda.

Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Sigurður Líndal verkefnisstjóri í síma 611-4698 eða á netfanginu sigurdurl@vestfirdir.is